Kl. 12:50
Njörður horfði um stund á andlit Fjalars. Hann var forvitinn um hvers vegna Fjalar hafði haft samband við Háskólann og farið fram á aðstoð þaðan. Það var svo sem ekkert óeðlilegt við það að stjórnsýslan bæði Háskólann um hjálp í hinum og þessum málum, hins vegar tvisvar sinnum í sömu viku og sama stofnunin, það var undarlegt. Njörður hafði nefnilega heyrt það út undan sér að Grímur Pálsson, prófessor í dýrafræði, hefði verið kallaður til síðastliðinn laugardag í tengslum við skipsfundinn, en hann vissi ekki af hverju. Dagblöðin voru uppfull frétta annars vegar af morðinu og hins vegar skipsfundinum.
Hann hafði farið sérstaklega niður á höfn til að skoða skipið sem fannst úti á Faxaflóa. Það lá kyrrt í þokunni við hafnarbakkann og birtist Nirði frekar sem skuggi sjálfs síns en sem raunverulegur hlutur. Þegar hann stóð og starði á dökkt skipið fann hann hvernig hendur hans krepptust í hnefa, hann spennti þær svo fast að hann verkjaði enn í fingurna. Eitthvað við þetta óvistlega skip, þennan dauða hlut vakti upp með honum minningar úr æsku. Af ótta, einmanaleika og myrkri, af sársauka, bróður sínum og öllu því sem hann hafði lagt að baki sér fyrir löngu síðan. Hann ólst upp fyrir vestan ásamt móður sinni og Frey, eldri bróður sínum. Móðir hans vann myrkranna milli í frystihúsinu á meðan snjó skóf í hlíðarnar fyrir ofan þorpið. Það kom í hlut Freys að gæta yngri bróður síns, en þeir áttu ekki skap saman þá, frekar en nú. Freyr var skapbráður og stjórnsamur en Njörður þrjóskur. Freyr notaði stærðar- og styrktarmuninn sem var á þeim bræðrum til hins ítrasta, hikaði ekki við að beita hnefunum þegar þess þurfti. Hann gerði það að leik sínum að spila með ótta Njarðar við snjóflóð og þegar Frey hafði tekist að græta bróður sinn læsti hann Njörð niðri í dimmum kjallara, samt vissi hann hversu myrkfælinn yngri bróðir hans var. Oftar en ekki kom móðir Njarðar að honum þar sem hann lá undir hillusamstæðu einni, hlandvotur og grátbólginn. Einhverra hluta vegna kallaði ásýnd skipsins þessar tilfinningar fram á ný og Njörður hraðaði sér á brott. Hann óskaði þess að þurfa aldrei aftur að bera það augum.
Fjalar opnaði skúffu á skrifborðinu og tók upp lítinn bunka af ljósmyndum. Hann rétti myndirnar yfir borðið og bauð Nirði að líta á þær, sem hann gerði. Fyrsta myndin var af dökkum viðarkassa en erfitt var að greina hvar kassinn stóð. Hann var ómerktur. Næsta ljósmynd sýndi ofan í kassann og við fyrstu sýn virtist hann vera tómur. Hann fletti áfram og á þriðju myndinni kom í ljós brúnn, kringlóttur hlutur. Hann pírði augun og reyndi að rýna betur í myndina. En það var erfitt að greina nákvæmlega af hverju hún var. Á þeirri fjórðu var hins vegar búið að færa hlutinn yfir á hvítt borð og augljóslega hafði verið notuð betri myndavél með mjög öfluga aðdráttarlinsu. Þá sá Njörður loks hvað var á myndinni. Mannshöfuð. Skorpin húðin lá strekkt yfir höfuðbeinin, búið var að sauma fyrir augun og hárið hafði verið rakað af. Munnurinn var lítill, varirnar herptar en nefið flatt og nasirnar óvenjulega stórar. Hann staldraði við þessa mynd.
-Hvar funduð þið þetta, spurði hann.
-Um borð í skipinu sem...
-Því sem fannst um helgina?
-Já.
-Ég trúi þér ekki, sagði Njörður hissa.
-Af hverju ekki? Þetta er nú langt frá þvi að vera það ótrúlegasta við þetta skip.
Njörður svaraði ekki. Hann sneri athygli sinni aftur að myndinni. Þá var bankað laust á hurðina og dyrnar opnaðar. Inn gekk ljóshærð kona með kaffikönnu og tvo bolla. Hún brosti til Njarðar, lagði könnuna og bollana á skrifborðið. Þegar hún var farin spurði Fjalar Njörð hvort hann hefði nokkra hugmynd um hvaðan höfuðið gæti hafa komið.
-Nei, ekki get ég sagt það. Gæti ég fengið að sjá það?
-Nei, því miður. Það var sent út til Danmerkur í morgun til rannsóknar.
-Andskotinn, ég hefði viljað fá að skoða það.
-Hvað getur þú hins vegar sagt mér um þetta? Hvaða ályktanir geturðu dregið af myndunum?
-Af því sem mér sýnist á þessari mynd, svaraði Njörður og lyfti upp fjórðu myndinni.
-Þá er ljóst að viðkomandi hefur verið smurður og útbúinn í gröfina af töluverðri nærgætni. Augun hafa verið tekin úr og miðað við hversu flatt nefið er hefur brjóskið eflaust einnig verið fjarlægt. En þetta er bara ályktun, engin nákvæm vísindi, sagði hann og yppti öxlum.
-Við vorum búnir að fá réttarlækni til að líta á höfuðið og hann komst að því að það væri gat á milli nefhols og heila, sem er horfinn. Svo virðist vera sem að hann hafi verið fjarlægður í gegnum þetta gat. Auk þess þá eru undarlegar rákir í munninum, sem enginn kunni sérstök skil á. Einna helst hölluðust þeir sem skoðuðu höfuðið að því að einhvers konar töng hafi verið notuð til að fjarlægja eitthvað úr munninum.
-Ja, hérna. Ég veit ekki til þess að nokkurt nútímasamfélag stundi álíka greftrunarsiði. Áður fyrr tíðkuðust ýmsar aðferðir, í raun jafn margar samfélögum manna. Hér á landi voru menn ýmist lagði í haug eða brenndir á báli fyrir kristnitöku en nokkru eftir hana þá komst sú tíska á að leggja menn í merkta reiti.
Eftir stutta umhugsun bætti Njörður við.
-Sú ályktun sem hægt er að draga strax miðað við þetta er að sá sem útbjó þetta lík, þetta höfuð, til greftrunar hefur borið töluverða virðingu fyrir því og eflaust haft sterkar skoðanir eða búið við trúarbrögð sem hafa haft einhverjar kenningar um líf eftir dauða.
-Hvernig sérðu það?
-Þau samfélög sem hafa ekki einhverjar meiriháttar útskýringar á hvað gerist að þessu lífi loknu, hafa jafnan fábreyttari greftrunarsiði en þau sem hafa djúpar og ítarlegar skilgreiningar.
-Nú, já. En þetta er nú ekki aðalástæða þess að ég lét boða þig hingað, sagði Fjalar og benti Nirði á að fletta áfram í gegnum myndirnar. Njörður gerði það uns Fjalar benti honum á stoppa við eina þeirra. Hún sýndi töluvert stækkaða mynd af ákveðnum hluta höfuðsins, af enninu er að því virtist. Þar mátti greina undarlegt tákn, einhvers konar húðflúr.
-Þetta er ástæðan fyrir veru þinni hér. Ég fór fram á aðstoð einhvers sem gæti ráðið í rúnir, tákn og galdrastafi. Mér var bent á að ræða við þig.
Njörður leit upp frá myndinni. Hann kinkaði kolli en sneri sér síðan aftur að henni hugsi. Húðflúrið var vandað þrátt fyrir einfaldleika sinn og næstum ósýnilegt á dökkri húðinni. Hvað skildi það merkja? Kassi, kannski stóð hann fyrir kistu. Ætli hitt merki fjöll, kannski haf? Kista undir fjöllum eða í djúpum hafsins? Skip á hafi? Hugsanirnar þutu með ógnarhraða um höfuð Njarðar. Hvaða þjóðir höfðu lagt stund á húðflúr? Hversu gamalt skyldi höfuðið vera? Hvaðan skyldi það koma? Njörður fann hvernig forvitni og eftirvænting hlóðust upp innra með honum.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Emelía (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 23:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.