24. janúar
Kl. 12:40
Njörður sat inni á skrifstofu Fjalars og beið þess að hann sneri aftur. Stúlkan í afgreiðslunni hafði sagt að hann hefði rétt skroppið og væri væntanlegur aftur innan tíðar. Hún vísaði Nirði inn á skrifstofuna og þar sat hann núna og beið. Ósjálfrátt leit hann í kringum sig. Skrifstofan hafði lítið breyst síðan hann var hér síðast. Bókaskápur hlaðinn möppum, hver merkt með ártali, stóð við hlið dyranna. Fyrir miðju herberginu var gamalt skrifborð þakið alls kyns skýrslum og blöðum, þar var einnig einmanalegur kaffibolli sem eflaust hafði verið þar töluvert lengi án þess að vera þrifinn miðað við hrörlegt útlit hans. Njörður setti hönd undir kinn og horfði út um gluggann yfir Hverfisgötuna. Úti var enn hnausþykk þoka, svolítið eins og grá ull sem lögð var á milli steinlitaðra húsanna. Ljós bifreiðanna voru ekki ósvipuð kattaraugum sem hurfu hljóðlaust út í grámóskuna. Síðasta fundi þeirra Fjalars skaut upp í koll Njarðar. Móðir hans hafði fundist látin á þriðjudagsmorgni fyrir fjórum árum og lögregluna grunaði að ekki væri allt með felldu. Rispur við útidyralásinn renndu stoðum undir þær kenningar að reynt hefði verið að brjótast inn en ekki tókst að færa neinar sönnur á það þrátt fyrir allt. Ekkert hafði horfið úr íbúðinni, engu að síður þurfti Njörður að sitja inni á þessari skrifstofu heilan eftirmiðdag og fara yfir langan lista yfir eigur móður hans. Lögregluna hafði jafnvel grunað bróður Njarðar, sem bjó á þeim tíma í Reykjavík og lifði fremur óreglusömu lífi.
Skyndilega voru dyrnar opnaðar og Fjalar gekk inn. Njörður hrökk upp úr þessum hugleiðingum sínum og leit við. Fjalar horfði um stund á Njörð og á andlit hans kom undarlegur svipur. Njörður stóð á fætur, rétti fram höndina og kynnti sig. Þá var eins og Fjalar kæmi fyrir sig gestinum og brosti um leið og hann tók í hönd hans.
-Já, sæll, ég kannaðist eitthvað við andlit þitt en kom því ekki fyrir mig fyrr en þú kynntir þig. Hvað get ég gert fyrir þig?
Njörður opnaði munninn en sagði ekki neitt fyrst um sinn. Hann var nokkuð undrandi á þessum viðbrögðum Fjalars.
-Fyrir mig? Ég fékk þau skilaboð að þú vildir ná tali af mér.
-Nú?
-Já, er það vegna móður minnar?
Fjalar settist niður og starði á Njörð hugsi. Þá var eins og rynni upp fyrir honum ljós.
-Já, alveg rétt. Þú ert málfræðingur, ekki satt? Njörður Torfason, sagn- og málfræðingur. Átt að vera sérfræðingur í fornum málum og táknum?
-Jú, svo er víst.
-Nú skil ég. Um stund hélt ég að ég væri orðinn eitthvað ruglaður. Jú, ég lét senda eftir þér, eða öllu heldur, fór fram á aðstoð Háskólans.
Njörður settist aftur niður í stólinn og horfði framan í Fjalar. Hann virtist þreyttur, dökkir skuggar voru undir augum hans og einhver sljóleiki í þeim, kannski sökum svefnleysis eða of mikillar streitu. Hann beið þess að Fjalar héldi áfram.
-Má bjóða þér kaffi, spurði Fjalar.
Njörður jánkaði og Fjalar steig á fætur. Hann opnaði dyrnar og steig fram. Njörður fylgdi honum eftir með augunum. Ekki var Fjalar fyrr stiginn fram en að ung, dökkhærð kona gekk ákveðnum skrefum að honum. Hún var klædd brúnni ullarkápu og með rauðan trefil. Fjalar bandaði henni frá sér. Eitthvað sem hún sagði virtist hins vegar ná athygli hans, því hann snerist skyndilega á hæli og hlustaði á konuna. Eftir nokkrar mínútur kvöddust þau. Fjalar flýtti sér að afgreiðslustúlkunni. Þegar hann sneri aftur lokaði hann á eftir sér og bölvaði.
-Helvítis blaðasnápar, sagði Fjalar og hristi höfuðið. Hann hlammaði sér niður í skrifborðstólinn og dæsti. Það brakaði í stólnum undan þéttvöxnum líkamanum.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.