Kl. 10:15
Grímur þagði og horfði á símann. Hann var viss um að Guðbjörg myndi sjá að sér. Engu að síður voru það honum vonbrigði að hún skyldi ekki spyrja hvernig hann hefði það. Hún vildi bara fá upplýsingar um þetta mál í Skipasundi, kvaddi hann ekki einu sinni. Hann sagði henni ekki frá öllu, Grímur vissi sem var að hún myndi birta það í Morgunblaðinu og hann var sammála Fjalari um að sumt þyrfti almenningur ekki að vita.
Síðasta laugardagskvöld var klukkan farin að síga í eitt og hann var nýbúinn að koma sér fyrir í stofusófanum þegar síminn hringdi. Á línunni var Fjalar, annað skiptið þann daginn sem hann hringdi í hann og með skjálfandi röddu bað hann Grím um að koma í Skipasund, hann þyrfti aftur á aðstoð hans að halda. Hann hafði týnt á sig spjarir og hringt á leigubíl. Védís stóð í svefnherbergisglugganum og fylgdist með er hann steig út, en þegar hann rétti upp höndina til að veifa henni hvarf hún á bakvið þykk gluggatjöld. Skömmu síðar var hann kominn upp í Skipasund og við honum blöstu nokkrar lögreglubifreiðar og sjúkrabíll. Einhverra hluta vegna sýndist honum þokan þykkari þarna við sundin en í miðbænum, kannski vegna nálægðar sinnar við hafið ályktaði Grímur. Hann greiddi fyrir farið og steig út. Einhvern veginn virtist allt á fleygiferð, lögreglumenn flýttu sér framhjá honum og gáfu honum engan gaum, allir virtust of uppteknir til að taka eftir honum. Loks kom hann auga á Fjalar og sýndist að honum væri nokkuð mikið niðri fyrir. Fjalar var náfölur og Grímur fann að hann skalf þegar þeir tókust í hendur. Fjalar reyndi að vara Grím við en engar viðvaranir hefðu getað búið hann undir það sem beið hans inni í tvílyfta steinhúsinu. Fjalar leiddi hann inn í lítið svefnherbergi. Á gólfinu var nakið lík ungs manns. Andlitið afskræmt, fjórir djúpir skurðir náðu frá ofanverðu enni niður að kjálkabeini frá hægri til vinstri. Annað augað hafði fallið úr tóttinni og lá sprungið við hlið líksins. Brjóstkassinn var þó sínu verst farinn, rifjahylkið hafði verið rifið upp, eins og eitthvað hefði sprengt sér leið út. Í loftinu fyrir ofan rúmið var stór og kekkjótt blóðsletta, gulhvítar beinflísar og sinar voru á veggjunum í kring. Öðru hvoru lak blóð úr loftinu.
Þegar líða tók á nóttina kom í ljós að eitt líffæranna hafði verið numið brott. Í brjóstholinu var stórt gap þar sem hjartað hafði áður verið, slagæðarnar lágu tættar ásamt slitnum, fölbleikum sinum, héngu ofan í blóðpolli sem hafði myndast í holrúminu.
Fjalar dró Grím út í horn herbergisins og benti honum á lítinn svartan hlut sem lá á gólfinu. Grímur beygði sig niður og skoðaði hann vandlega. Hann sá að þetta var brotin kló, það fór ekki á milli mála. Hann þurfti ekki að virða fyrir sér klóna lengi, hún var af hunddýri. Þegar hann hafði lokið skoðuninni stóð hann upp og sneri sér að Fjalari. Hann kom þá auga á það sem hafði verið skrifað, eða öllu heldur, hafði verið reynt að skrifa á vegginn gegnt rúminu. Stórir, rauðir stafir: Te, síðan kom strik sem náði niður að gólfi. Eflaust hafði sá sem ætlaði að skrifa á vegginn ekki náð að klára, hafði Grímur ályktað. Hvað ætli þetta þýði? spurði Grímur Fjalar en hafði ekki fengið nein svör. Það var sem sá sem þetta hafði skrifað hafi gert svo í miklum flýti og ekki náð að klára. Grímur leit af veggnum á hendur hins látna, báðar voru þær blóðugar, en mátti ekki búast við því?
Grímur hristi höfuðið til að losna við myndir næturinnar úr kollinum. Hann velti klónni milli fingra sér. Fjalar hafði sent honum hana fyrr í dag. Hann horfði á skrifblokkina fyrir framan sig. Það var sama hvernig hann reyndi, þrátt fyrir allar þessar upplýsingar þá gekk þetta bara ekki upp. Tölurnar, stærðarhlutföllin, voru í engu samræmi við raunveruleikann. Það var nokkuð ljóst að hún var af einhverju hunddýri, en hvaða? En samt var hún alltof stór. Hvað var eiginlega í gangi? Var kannski eitthvað stökkbreytt afbrigði hér á ferðinni? Hver myndi svo sem trúa því að hér væri um úlf að ræða sem var á stærð við fullvaxinn karlmann? Þetta gekk bara ekki upp. Einhvers staðar hlyti hann að hafa gert mistök. Dýr bönkuðu ekki upp á hjá fólki og drápu það í svefnherbergjum sínum.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.