Kl. 18:40
-En hvað heldurðu að hafi skilið þetta eftir sig, spurði Fjalar.
-Ég veit það ekki, svaraði Grímur og opnaði töskuna sína. Hann tók upp polaroid myndavél, skrifblokk og blýant. Hann sneri sér að hinum mönnunum og spurði hvort nokkur væri með eldspýtnastokk. Páll veiddi einn slíkan upp úr buxnavasanum og rétti Grími. Hann lagði eldspýtnastokkinn á hlið við farið, tók síðan nokkrar myndir af farinu og stóð loks upp. Hann hélt einni myndanna upp í birtuna frá vasaljósi Fjalars. Á henni var greinilegt fótspor, rautt á dökkum fleti. Grímur horfði nokkuð lengi á myndina og var hugsi. Hvaða dýr gat þetta verið? Einhvern veginn þá pössuðu hlutföllin ekki, hér var eitthvað skrýtið á seyði.
-Jæja, ertu ekki eitthvað nær því hvaða dýr um ræðir, spurði Páll og bætti síðan við: -Eru ekki fótspor fyrir dýrafræðinga eins og fingraför fyrir rannsóknarlögreglumenn?
Grímur leit á Pál og yppti öxlum.
-Það má kannski segja það. En nei, ég verð bara að viðurkenna, ég er hvergi nær því nú en þegar ég steig um borð.
-Nú, hvað áttu við, spurði Fjalar og Grími fannst hann greina örlitla gremju í rödd Fjalars.
Eftir stutta umhugsun svaraði Grímur:
-Ég er ekki viss en það er eitthvað sem stemmir ekki. Ég hef verið að reyna raða saman í huganum mynd af því dýri sem virðist hafa gengið berserksgang hérna, en bara kem ekki fyrir mig hvaða dýr þetta gæti hafa verið. Förin eru eftir stuttar klær og sterkar, sem gæti hugsanlega bent til þess að um hvítabjörn sé að ræða. Hins vegar eru birnir felddýr og því er undarlegt að koma hvergi auga á hár. Auk þess þá styður þetta fótafar ekki þá kenningu. Birnir hafa stóra og sterka fætur, með breiðum þófum og þeir stíga þungt niður. Ég veit ekki alveg hvað ég á að halda um þetta fótspor. Það er eins og einhver sé að reyna villa um fyrir okkur. Ég gæti einna helst ímyndað mér að þetta væri eftir einhvern mann í dýrabúningi.
Hann tók myndina upp og bar hana aftur í ljósið. Þetta far var eitthvað undarlegt, það passaði einhvern veginn ekki, var of stórt og of langt.
-Eins og þið sjáið er þetta fótspor eftir dýr, ef þetta er þá dýr, sem hefur ekki jafn breiða fætur og ætla má með birni. Takið eftir hversu stutt er á milli klónna. Þófarnir er þar að auki minni og það stígur nokkuð létt til jarðar, næstum eins og kattardýr. En þó er þetta ekki af ætt katta því lögun þófanna er ekki rétt, þar að auki ganga fæstir kettir með klærnar úti. Það verður líka að segjast eins og er, stór ísbjörn ætti ekki auðvelt með að fara um þessa þröngu ganga, til þess er hann of breiður.
-Ef þetta er ekki maður, hvaða dýr gæti þá þetta hafa verið, spurði Ragnar.
-Enn og aftur segi ég: Ég er ekki viss. Það er eitthvað við þetta sem ekki stemmir.
-Hvað með úlf, spurði Fjalar.
-Úlfar gætu eflaust passað inn í þessa mynd, ef ekki væri fyrir nokkur ákveðin séreinkenni og stærð farsins. Þeir eru ein afkastaminnstu rándýrin í náttúrunni. Ekkert dýr fer í jafn margar misheppnaðar veiðiferðir og þeir. Ástæða þessa er einföld, þeir halda ekki í við spretthörðu dýrin og eru ekki nógu sterkir til að takast á við þau stóru. Þeim tekst að halda velli með samvinnu innan hóps og þegar þeim tekst að drepa bráð er það yfirleitt vegna þess að þeir elta hana þar til hún hreinlega springur. Einn úlfur er afskaplega hættulítill og hefur engan veginn kraft til þess að rífa handlegg af fullorðnum einstaklingi. Auk þess þá er farið allt of stórt til þess.
-En hundur?
-Já, kannski. Einna hallast ég mest að þeirri hugmynd, ef um dýr er að ræða. Að hér hafi verið einhver stóru hunda á ferð, t.d. Stóri-Dani, St. Bernharð, kannski einhver hinna fjallahundanna. Enda er það líklegri kenning en nokkur hinna. Hundur gæti hafa komist um borð sem gæludýr eða jafnvel stolist um borð í síðustu höfn. En, eins og ég sagði áðan, þá finnst mér það harla ólíklegt. Þetta hlýtur að hafa verið einhver maður klæddur í dýrabúning sem hefur tipplað á tánum hér yfir.
-Heldurðu þá að maður gæti það eitthvað frekar? spurði Ragnar.
Þeir ræddu þetta um stund uns Fjalar sagði að þeir þyrftu að halda áfram. Þeir gengu inn í vélarýmið. Þegar þeir komu út aftur hélt hópurinn inn í messann og tóku lögreglumennirnir hvor undir sinn enda kistunnar. Þaðan fóru þeir upp á þilfar.
-Þetta er orðið ágætt í kvöld, sagði Fjalar við þá Grím og Ragnar.
-Ég mun hafa samband við ykkur á mánudag, bætti hann síðan við.Flokkur: Bækur | Fimmtudagur, 29. maí 2008 (breytt kl. 20:05) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já
Ómar Ingi, 29.5.2008 kl. 20:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.