Þoka

Kl. 18:30

 

Matsalur Hressingarskálans var þétt setinn sem svo oft áður og Guðbjörg smokraði sér á milli stóla og borða til að komast að símasjálfsala. Hún brosti vandræðalega og bað gesti matsölustaðarins um að hleypa sér í gegn. En hún komst loks að sjálfsalanum og lét mynt í raufina, valdi síðan númer lögreglustöðvarinnar og innan tíðar var svarað. Guðbjörg bað símastúlkuna um að gefa sér samband við Fjalar Vignisson, varðstjóra. Svar stúlkunnar kom henni ekki á óvart, hún hafði beðið nokkuð lengi og fylgst með skipinu. Henni var launuð þolinmæðin þegar Grímur birtist á þilfarinu. Ekki þurfti hún að bíða lengi eftir að fleiri menn komu í ljós. Hún þekkti þá ekki alla úr þessari fjarlægð, en henni sýndist einn þeirra vera einkennisklæddur og það vera sami maðurinn og hafði leitt Grím um borð. Það var ekki laust við að glott læddist fram á varir hennar þegar hún sá hann halla sér fram yfir borðstokkinn og kasta upp. Þegar mennirnir hurfu aftur ofan í skipið sat eftir undrun og forvitni. Hvað gæti hafa orkað svo sterkt á Grím? Kannski var það ekkert, kannski var þetta bara magakveisa. En hvað ef það var ekki einhver veiki? Hvað ef eitthvað svo skelfilegt hefði gerst þarna um borð að það hefði þetta öflug áhrif á Grím?

Hún bölvaði lögreglunni í hljóði um leið og hún lagði tólið á. Hún kom auga á autt borð og settist við það. Úr því hún var stödd þarna þá mátti allt eins nýta ferðina og fá sér að borða, hugsaði hún með sjálfri sér og benti ungum þjóni að koma með matseðil. Það var skömminni skárra að snæða þarna innan um fólk en að sitja ein í kjallaraholunni sem hún leigði af aldraðri frænku sinni.

Skammt frá henni sátu tveir menn í einkennisbúningum Landhelgisgæslunnar. Öðrum þeirra, ljóshærðum manni um þrítugt með bólugrafið andlit, virtist nokkuð niðri fyrir. Félagi hans var eldri, dökkur yfirlitum og smágerður, hann minnti Guðbjörgu á karlmennina suður við Miðjarðarhaf. Sá ljóshærði baðaði út höndum og talaði hratt. Blaðakonan reyndi að hlera hvað þeir voru að tala um, en hún átti erfitt með að greina orðaskil. Hún fylgdist með þeim og tók ekki eftir því þegar þjónninn sneri aftur til að taka við pöntun hennar. Guðbjörg brosti og bað um súpu dagsins. Þjónninn greip matseðilinn, sem hafði ekki verið opnaður, af borðinu.

Á meðan hún borðaði velti hún fyrir sér því hvort hún ætti að hringja í Grím, en var ekki viss um að það væri sniðugt. Hann væri vís til að ráða í það eins og honum þóknaðist, eftir sínum hentugleika og hún hafði ekki löngun til að standa í þessu öllu saman aftur. Gærkvöldið hafði verið nógu erfitt. Hann tók sambandsslitunum ekki vel og hún hafði aldrei áður séð hann jafn reiðan, þó hann feldi það ágætlega og reyndi að bera sig vel. En reiðin leyndi sér ekki því hún skein úr gráum augunum. Guðbjörg gat bara ekki staðið í þessu lengur, sérstaklega ekki þegar það var sem allir vissu um þau.

Mennirnir tveir stóðu á fætur. Þeir gengu framhjá Guðbjörgu á leið sinni út og hún heyrði að þeir voru að ræða um skipsfundinn. Heppnin var með henni. Hún spratt úr stólnum og flýtti sér að finna þjón. Hún gerði upp og elti síðan mennina. Þeir voru komnir út á torg. Þegar hún loksins losnaði frá uppgjörinu og steig út fyrir dyr veitingastaðarins voru þeir að hverfa fyrir hornið á Lækjargötu. Hún spretti úr spori og náði þeim loks við styttuna af sr. Friðriki.

-Afsakið, halló, afsakið, strákar, kallaði hún til að ná athygli þeirra. Sá ljóshærði leit við og benti félaga sínum á að hinkra. Þeir virtust nokkuð undrandi á svip en í augum þeirra greindi Guðbjörg glettnisblik. Hún leit sem snöggvast í kringum sig.

-Sælir, ég heiti Guðbjörg og er blaðamaður á Morgunblaðinu. Ég komst ekki hjá því að heyra hvað þið voruð að ræða um inni á Hressó og mig langar til að spyrja ykkur nokkurra spurninga ef ykkur er sama?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 28.5.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband