Kl. 18:20
Fjalar leiddi hópinn í gegnum myrkvað skipið. Þrátt fyrir að ljóskösturum hafði verið komið fyrir á göngunum var sem þeir megnuðu ekki að lýsa í gegnum myrkrið. Mennirnir stöldruðu við á nokkrum stöðum og Grímur skoðaði för sem lögreglan var búinn að finna og merkja áður en hann kom. Við hvert far var búið að líma lítinn svartan og hvítan límmiða, sem notaður til að sýna rétt hlutföllin. Grímur mældi förin og punktaði hjá sér. Þegar hann ætlaði að taka upp myndavél sagði Fjalar að rannsóknardeildin væri búin að taka myndir af öllum förum sem hefðu fundist og Grímur gæti fengið afrit af þeim.
-En hafið þið komið auga á eitthvað annað sem gæti verið hjálplegt? Einhver önnur vísbending um hvaða dýr var hér að verki en þessi för, spurði hann Fjalar.
-Eitthvað eins og spor eða hár, skít eða hlandbletti, bætti hann síðan við þegar hann sá svipinn á andliti Fjalars.
-Ekki svo ég viti til, en við höfum ennþá ekki náð að rannsaka skipið til hlítar. Það kom til hafnar í morgun og ég geri ekki ráð fyrir að rannsókninni verði lokið fyrr en í fyrsta lagi á mánudagsmorgun. Kannski að eitthvað hafi komið upp úr krafsinu þá.
Grímur kinkaði kolli hugsi. Það var eitthvað við þessi för sem truflaði hann. Þetta var ekki eðlilegt. Hann taldi ólíklegt að hvítabjörn hefði gengið berserksgang um borð, þrátt fyrir að birnir séu varhugaverð og stórhættuleg dýr. Hvernig björninn hefði átt að komast um borð var ráðgáta sem yrði erfitt að leysa. Hann fór í huganum yfir þau rándýr sem komu til greina. Þau voru ekki mörg. Og þó, þar sem hvorki var vitað hvar þetta skip hafði verið né hvaðan það hafði komið gat hvað sem er komið til greina. Kannski að skipið hafi verið að flytja dýr í einhvern dýragarð og það sloppið út. Samt var skrýtið að ekki hafði neitt annað fundist en þessi för, flest skildu þau eftir sig auðþekkjanlega slóð.
Fjalar stöðvaði hópinn og benti Grími á enn ein förin, hann beygði sig niður og skoðaði þau. Við förin var uppþornaður blóðblettur og í honum mátti greina litla, harða köggla. Eflaust kjöttægjur ályktaði Grímur og benti lækninum á að koma nær.
-Hvað í veröldinni ætli hafi gengið hér á? spurði Ragnar lágt. Grímur svaraði engu en starði á blóðblettinn. Hann var ekki ýkja stór, en Grími fannst sem eitthvað hlyti að hafa skollið á veggnum. Súrt gallbragð kom fram í munni hans og hann spratt á fætur.
-Er ekki allt í lagi, spurði Páll.
-Ha, jú, - eða nei, ég verð að komast út, sagði Grímur og ýtti Páli úr leið sinni. Hann flýtti sér upp á þilfar. Töluvert hafði dregið úr vindi en engu að síður var nokkuð hvasst. Fyrir ofan höfnina óð skarður máni í kólguskýjum, eins og silfraður ljár væri dreginn á, og kastaði daufri birtu yfir borgina. Hann leit aftur fyrir sig, á dyrnar sem gíndu við honum eins og skoltar hungraðs rándýrs. Ósjálfrátt leitaði hugur hans að handleggnum sem lá í kistunni niður í messa. Allt hringsnerist í kollinum á honum og enn á ný kom súrt bragð í munninn. Hann fann hvernig hádegismaturinn braut sér leið upp í hálsinn og Grímur hallaði sér út yfir borðstokkinn.
Hinir mennirnir komu upp á þilfarið í þann mund sem Grímur settist niður og þurrkaði sér um munninn. Hann leit á þá skömmustulegur á svip.
-Ég er ekki vanur ...
-Ætli maður verði nokkurn tíma vanur, svaraði Fjalar og greip fram í fyrir honum. Þeir þögðu og Grímur hlustaði á draugslegt gnauð vindsins. Innan tíðar hafði hann jafnað sig og mennirnir héldu á nýjan leik niður í skipið. Eftir því sem þeir fóru neðar varð loftið þyngra og daufur keimur, sambland olíu og þeirrar lyktar sem jafnan einkennir sláturhús á haustin, fyllti vit þeirra. Grími fannst sem þeir gengu inn í fornt grafhýsi, hljóðin frá borginni hljómuðu kæfð og fjarlæg, hann óttaðist að heyra hlerann skella aftur að baki sér. Hvað ef það myndi síðan slokkna á ljóskösturunum? Gat verið, þrátt fyrir föla birtuna, að hann fyndi hálfpartinn til myrkfælni? Hvað hafði eiginlega gerst um borð í þessu skipi?
Þegar þeir komu niður að dyrunum að vélarými skipsins stansaði Grímur skyndilega. Hann var ekki viss um hvað það var, en eitthvað sagði honum að þeir væru ekki einir. Hann leit aftur fyrir sig. Honum fannst hann sjá hreyfingu einhvers staðar í hinum enda gangarins. Hann bað Fjalar um að lýsa þangað en þar var ekkert. Grímur stóð kyrr um stund og horfði inn myrkvaðan ganginn. En er hann ætlaði að stíga inn í vélarýmið tók hann eftir svolitlu. Hann bað Fjalar um að lýsa þangað og beygði sig niður.
-Hvað er þetta, spurði Fjalar.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ooo þetta er svo spennandi !
Ragnheiður , 27.5.2008 kl. 22:24
Já Fjalar hvað er þetta ?
Ómar Ingi, 27.5.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.